Sítrus
Við erum Sítrus hönnunarstofa. Við höfum margra ára reynslu úr hönnunarheiminum, þar sem við höfum unnið fyrir hin ýmsu fyrirtæki, tónlistarfólk, samtök og stofnanir á Íslandi. Við sérhæfum okkur í að umbreyta hugmyndum í sjónrænar útfærslur sem skilja eftir sig hressandi hughrif. Við förum inn í hvert verkefni með frumleika að leiðarljósi sem tryggir að vörumerkið þitt skeri sig úr. Frískum upp á hugmyndir þínar og sköpum eitthvað frábært saman! Endilega hafðu samband á sitrus@sitrus.studio
Meðal viðskiptavina
Mikado. Bari. Röntgen. Skreið. Peel. Fiskmarkaðurinn. Íslandshótel. Lýsi. Stockfish Film Festival. Kaupfélag Skagfirðinga. Mjólka. Kraftur. Bodega. Arctic Sea Tours. Gabríel Ólafs. RAKEL. Feldur. Golfstöðin. Reykjavík Orkestra. Innipúkinn. Grandi Mathöll. Garðabær. Helix Health. Iða. Betri samgöngur. Eldum rétt. Íslandsbanki. Athygli. Stjórnarráð Íslands.
Teymið
Aron Freyr Heimisson
Hönnuður | EigandiAron Freyr Heimisson er grafískur hönnuður og annar eigenda Sítrus. Hann lauk námi frá Myndlistaskólanum á Akureyri.
Aron hefur komið víða við í hönnun og tók meðal annars þátt í stofnun og þróun Geysis Heima. Ásamt Einari opnaði hann verslunina Mikado í miðbæ Reykjavíkur árið 2020 og árið 2025 tóku þeir þátt í stofnun vínbarsins Bari, þar sem þeir hönnuðu allt frá ásýnd og grafískri hönnun yfir í rými og upplifun.
Einar Guðmundsson
Hönnuður | EigandiEinar Guðmundsson er grafískur hönnuður og annar eigenda Sítrus. Hann lauk námi í grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands og síðar námi í prentun frá Tækniskólanum.
Einar hefur starfað við grafíska hönnun og listræna stjórnun um árabil, bæði á hönnunar- og auglýsingastofum og sjálfstætt. Hann stendur einnig að baki Mikado og kom að stofnun Bari ásamt Aroni og hefur í gegnum árin komið að fjölbreyttum verkefnum þar sem grafísk hönnun, vörumerki, rými og upplifun fléttast saman.