Bari

Bari er veitingastaður og vínbar í miðbæ Reykjavíkur sem opnaði í desember 2025. Við þróuðum verkefnið í heild sinni og sáum um allt frá ásýnd og vörumerki yfir í hönnun rýmisins. Innblásturinn er sóttur í hlýju, einfaldleika og afslappað andrúmsloft hefðbundinna ítalskra ostería. Rýmið er innréttað með stólum og veggljósum frá FRAMA, en ljósin yfir borðunum voru þróuð í samstarfi við Casegoods. Ljós yfir barnum er eftir Caia Leifsdotter. Efnispallettan samanstendur af vínrauðum flísum frá TopCer, hnotuklæðningu, stáli og hör og skapar hlýlegt og fágað rými þar sem látleysi og ending fara saman.

Myndir: Sunday & White Studio.

Next
Next

Mikado