[2024–2026]
[Mörkun]
[Vefhönnun]
[BÓKAHÖNNUN]

IÐA

Mörkun, vefhönnun og umbrots- og bókahönnun fyrir Iðu fasteignafélag. IÐA vann samkeppni Reykjavíkurborgar um grænar þróunarlóðir og hefur nú byggt sjö hæða íbúðahús að Frakkastíg 1 í samstarfi við sap arkitektar/Lendager og framkvæmdafélagið Arnarhvol. Um ræðir einstakt hús byggt af umhverfisábyrgð þar sem gæði hönnunar mæta umhverfisvænum lausnum.

Merkið er einfalt, sterkt og táknrænt. Það inniheldur geometrísk form sem mynda hring, en formið vísar til húsþaka og táknar því bæði byggingariðnaðinn og skjól sem hús veita. Merkið táknar einnig sjálfbærni og hringrás – grunnþætti í stefnu félagsins.